
Laugarvatn liggur yfir heitum reit, eins og mörg byggðarlög á Íslandi. Þetta þýðir að jarðvegurinn er kraumandi af sjóðandi vatni sem brýst upp á yfirborðið sem hverir hér og þar. Þetta heita vatn hefur verið notað til matargerðar, baða og húshitunar á Laugarvatni kynslóðum saman og er vatnið grunnurinn að ríkri baðmenningu svæðisins.
Við bakka Laugarvatns eru þrír sérstaklega kröftugir hverir með mismunandi hitastig sem notaðir eru í ólíkum tilgangi.
Vígðalaug er kaldasta uppsprettan, en sennilega sú frægasta. Við kristnitöku Íslands var laugin vígð og noter sem skírnarlaug og segja sagnir einnig að lík þeirra Jóns Arasonar birkups og sona hans hafi verið þvegin í Vígðulaug eftir að þeir voru hálshöggnir í Skálholti árið 1550.
Hverinn í miðjunni er notaður fyrir hveraböðin í Fontana. Fyrsta mannvirkið sem var reist á svæðinu var einmitt beint yfir þessum sama hver, og vísar staðsetning gufunnar í Fontana í dag til þessarar sögu.
Bláskógabyggð notar heitasta hverinn fyrir hitaveituna sína sem hitar upp flest mannvirki á svæðinu.