
Frá náttúrunnar hendi er umhverfi Laugarvatns Fontana við norðanvert Laugarvatn einstakt þar sem jarðvarminn kraumar. Í austri blasir fjallhringurinn við með Heklu, Hestfjalli, Vörðufelli og Eyjafjallajökul í hásæti.
Náttúruböðin sem nú hafa verið reist bjóða fyrst og fremst uppá að upplifa hina einstöku gufu beint yfir gufuhvernum fræga sem heimamenn og gestir hafa nýtt til heilsubaða að minnsta kosti síðan 1929. Auk þess er unnt að baða sig í heilsubaðvatni í þrískiptri baðlaug, dvelja í heitu sánubaði, ganga í volgum sandinum, dýfa sér í Laugarvatnið sjálf frá nýbyggðri bryggju eða slaka á í fallegum garðinum. Jafnframt gefur dvöl í böðunum ávallt tækifæri til að skynja hina síbreytilegu íslensku veðráttu og njóta fjallasýnar.
Laugarvatn Fontana er dótturfélag Gufu ehf. sem var stofnað árið 2005 af Hollvinum Laugardals (áður Hollvinasamtök Gufubaðs og Smíðahúss á Laugarvatni). Undanfarin misseri hafa öflugir aðilar, m.a úr ferðaþjónustu, deilt áhuga frumkvöðlanna og lagt fram krafta sína í uppbyggingu á svæðinu. Fyrsta skóflustunga að byggingunni var tekin 9. júní 2010 og opnað var í júlí 2011.
Hluthafar í Gufu ehf. eru rúmlega tuttugu og er markmið félagsins er hlúa að áframhaldandi rekstri Laugarvatn Fontana. Mikill metnaður er lagður í að virða náttúru, hefðir og sögu staðarins og samspil náttúru, vatns og gufu er gert hátt undir höfði. Tilkoma Laugarvatn Fontana hefur gjörbreytt allri aðstöðu hins betra og er nú boðið upp á gott aðgengi og góða þjónustu. Með þessum hætti stuðlum við að aukinni heilsársferðaþjónustu, atvinnuuppbyggingu og byggðaþróun í uppsveitum Árnessýslu.
Hönnuðir að Laugarvatn Fontana eru Landform, Á stofunni arkitektar og Studio Strik.